Tuesday, June 26, 2007

Myndir þú sofa hjá þessum manni?


Mér fannst merkilegt um daginn þegar félagi okkar, karlmannlegi fjölskyldufaðirinn opnaði sig um að hann myndi seint hafna Gogga einum allra karla ef honum gæfist séns á því í þessu lífi. Nú, þar að auki veit ég um allavega eina strangtrúaða lesbíu sem myndi gefa úr sér annað lungað fyrir einn sleik við Georginn. Með orðum Cliff Claven "What's up with that?".

Ótrúleg dirfska


Ég hef ákveðið að setja næstum nákvæmlega svona pott í garðinn minn! Unaðsskel hvorki meira né minna - gæti það verið öllu lostafyllra og dásamlegra? Ég held ekki. Býð öllum í pottapartý síðsumars....

Sunday, May 13, 2007

Loksins....

Loksins hefur elskulegur eiginmaður minn tekið ábendingar mínar til greina og skipt um hárgreiðslu. Allt annað að sjá manninn!

Góð hugmynd..

Mér verður doldið oft hugsað til Sigríðar Snævarr þessa dagana. Hvernig ætli sé að eiga fyrsta barn 55 ára og að vera svo komin á áttræðisaldur þegar gelgjan er að toppa? Sé alveg fyrir mér að dramatísku árin þegar Sunna mín engdist af Mansonisma og því hversu fáranlega óheppin hún var með foreldra hefði ég ekki viljað taka út mikið seinna. Ég ætti samt kannski bara að slá til, þessi þrjú börn verða orðin óttalega stór þegar ég verð 55 og maður lætur þá kannski bara slag standa þá. Þá verður Sunna orðin 38 ára og gæti léttilega verið orðin amma sjálf. Þá væri ég langamma og mamma á sama tíma. Langömmubarnið og litla barnið gætu þá leikið sér fallega alla daga - ekkert að því!

Friday, May 4, 2007

Myndir þú sofa hjá þessum manni?


Uppáþrengjandi

Ég hef tekið eftir því í starfi mínu að það er gegnumgangandi ótti hjá fólki með mikla félagsfælni um að vera uppáþrengjandi. Þess vegna læðist það með veggjum og yrðir ekki á nokkurn mann. Ég hef hins vegar aldrei tekið eftir þessum ótta hjá þeim sem eru í alvörunni ógeðslega uppáþrengjandi. Merkilegt!

Yesss!

Komst loksins aftur inn!! Ég er bara því miður of illa gefin til að blogga (synd þegar maður veltir fyrir sér sumum sem höndla þetta á reglulegum basis). Ég get bara ekki munað svona mörg leyniorð og lykilnúmer og notendanöfn. Kannski þess vegna sem ég hef alltaf þurft að láta mér nægja að lesa um frækileg afrek annarra við að leysa torræðar gátur, allt frá Nancy Drew til Kurt Wallander..... tók mig allavega 2 vikur að grafa upp hvernig ég kæmist inn á mitt eigið blogg....

Monday, April 23, 2007

Verð ég þá bráðum tólf?

Stundum held ég bara svei mér að mér fari aftur í þroska. Líkleg ástæða gæti verið að ég hlusta á Söngvaborg safnið 1-4 , agalega skemmtilegar dvd myndir með Siggu og Maríu þar sem frábærir karakterar á við Masa og Georg og Lóu (ó)kurteisu fara á kostum...
Ég hef ýmislegt þessu til sönnunar:
- mér er gersamlega skítsama um kosningarnar - hef mun meiri áhyggjur af Eika Rauða og Eurovision
- síðast þegar ég fór til útlanda verslaði ég nánast bara í Topshop eða hvar sem ég gat fengið gelgjulega þrykkta boli og föt með hauskúpum
- ég hef ekki horft á fréttir í sjónvarpi í sirka 3 mánuði - en fannst Dodgeball (sem ég sá óvænt í flugi) vera gargandi snilld
Hvað næst?
Fer ég bráðum að stelast út í "göngutúr" til að laumureykja á róló, eða drekka brennivínskrippling í strætóskýli?
Jæja, best að smeygja sér í Milletúlpuna og Topten skóna - verð að fara út í sjoppu og kaupa mér Hubbabubba og Tab...

Sunday, February 25, 2007

Fjórðungi bregður til fósturs

Kettir hafa lítinn heila og einhvernveginn býst maður ekki við miklum greindarafrekum af gæludýrum. Nema hvað Árni er eitthvað að pirra sig á því að strákarnir séu að hamast í bréfalúgunni og fer að taka í þá, þá er enginn á tröppunni nema kisa. Carmen hafði sumsé læsts úti (mental note, láta hana hafa lykil) og var að láta vita af sér með því að teygja sig í bréfalúguna og slá henni til og frá! Augljóslega undrabarn í kattarlíki, Árni segir að hún sé bara orðin svona af að umgangast okkur, heljarmenni andans.

Saturday, February 24, 2007

það er ekki næs....

að fá legsteina, ég held það sé bara verra en að fá nýrnasteina og gallsteina

Friday, February 23, 2007

Það er næs...

Að drekka rauðvín á föstudagskvöldi ....og laumast á meðan í nammidagsnammi barnanna

fresh start

Enn eitt bloggið stofnað! Mun sennilega ekki pósta nema einu sinni á þetta frekar en hin.... áður en ég finn mér eitthvað meira aðkallandi að gera eða dett niðrá góða bók.... Þar fyrir utan á ég ekki eftir að segja einni einustu lifandi sálu frá þessu bloggi því mér finnst ekkert jafn furðulegt og að þvinga aðra til að lesa pælingar þínar- er ekki nóg að fólk neyðist til að hlusta á mann rugla læv?