Sunday, May 13, 2007

Góð hugmynd..

Mér verður doldið oft hugsað til Sigríðar Snævarr þessa dagana. Hvernig ætli sé að eiga fyrsta barn 55 ára og að vera svo komin á áttræðisaldur þegar gelgjan er að toppa? Sé alveg fyrir mér að dramatísku árin þegar Sunna mín engdist af Mansonisma og því hversu fáranlega óheppin hún var með foreldra hefði ég ekki viljað taka út mikið seinna. Ég ætti samt kannski bara að slá til, þessi þrjú börn verða orðin óttalega stór þegar ég verð 55 og maður lætur þá kannski bara slag standa þá. Þá verður Sunna orðin 38 ára og gæti léttilega verið orðin amma sjálf. Þá væri ég langamma og mamma á sama tíma. Langömmubarnið og litla barnið gætu þá leikið sér fallega alla daga - ekkert að því!

No comments: