Loksins hefur elskulegur eiginmaður minn tekið ábendingar mínar til greina og skipt um hárgreiðslu. Allt annað að sjá manninn!
Sunday, May 13, 2007
Loksins....
Loksins hefur elskulegur eiginmaður minn tekið ábendingar mínar til greina og skipt um hárgreiðslu. Allt annað að sjá manninn!
Góð hugmynd..
Mér verður doldið oft hugsað til Sigríðar Snævarr þessa dagana. Hvernig ætli sé að eiga fyrsta barn 55 ára og að vera svo komin á áttræðisaldur þegar gelgjan er að toppa? Sé alveg fyrir mér að dramatísku árin þegar Sunna mín engdist af Mansonisma og því hversu fáranlega óheppin hún var með foreldra hefði ég ekki viljað taka út mikið seinna. Ég ætti samt kannski bara að slá til, þessi þrjú börn verða orðin óttalega stór þegar ég verð 55 og maður lætur þá kannski bara slag standa þá. Þá verður Sunna orðin 38 ára og gæti léttilega verið orðin amma sjálf. Þá væri ég langamma og mamma á sama tíma. Langömmubarnið og litla barnið gætu þá leikið sér fallega alla daga - ekkert að því!
Friday, May 4, 2007
Uppáþrengjandi
Ég hef tekið eftir því í starfi mínu að það er gegnumgangandi ótti hjá fólki með mikla félagsfælni um að vera uppáþrengjandi. Þess vegna læðist það með veggjum og yrðir ekki á nokkurn mann. Ég hef hins vegar aldrei tekið eftir þessum ótta hjá þeim sem eru í alvörunni ógeðslega uppáþrengjandi. Merkilegt!
Yesss!
Komst loksins aftur inn!! Ég er bara því miður of illa gefin til að blogga (synd þegar maður veltir fyrir sér sumum sem höndla þetta á reglulegum basis). Ég get bara ekki munað svona mörg leyniorð og lykilnúmer og notendanöfn. Kannski þess vegna sem ég hef alltaf þurft að láta mér nægja að lesa um frækileg afrek annarra við að leysa torræðar gátur, allt frá Nancy Drew til Kurt Wallander..... tók mig allavega 2 vikur að grafa upp hvernig ég kæmist inn á mitt eigið blogg....
Subscribe to:
Posts (Atom)
